Upplýsingatæknideild ríkislögreglustjóra annast rekstur allra miðlægra tölvukerfa lögreglu, ákæruvalds og Útlendingastofnunar.   Deildin ber sömuleiðis ábyrgð á lokuðu víðneti lögreglunnar og þeim gagnaflutningi og gagnasamskiptum sem fram fara á því neti.

Helstu upplýsingakerfin sem deildin rekur eru:

  • Málaskrá lögreglu, lögreglukerfið, þar sem öll verkefni og brot sem lögreglan fær til afgreiðslu eru skráð og haldið utan um feril þeirra.
  • Ökuskírteinaskrá þar sem öll ökuréttindi einstaklinga eru skráð, ferill útgáfu ökuskírteina o.s.frv.
  • Skotvopnaskrá þar sem öll skotvopn eru skráð sem og skotvopnaréttindi einstaklinga .
  • Leyfisveitingakerfi þar sem allar umsóknir um þau leyfi sem lögreglan gefur út eru skráðar og afgreiðsla þeirra.  Innri- og ytri vefur lögreglunnar.
  • Upplýsingakerfi Útlendingastofnunar varðandi þá málaflokka sem sú stofnun sinnir.
  • Þá annast upplýsingatæknideild ríkislögreglustjóra allt sem lýtur að Schengen-upplýsingakerfum á Íslandi, tengingar við erlend lögregluyfirvöld s.s. Europol og Interpol og miðlar aðgangi að upplýsingakerfum þeirra í samræmi við hlutverk og starfsskyldur starfsmanna.

Upplýsingatæknideild ríkislögreglustjóra annast kaup og uppsetningu allra útstöðva á tölvunetinu utan höfuðborgarsvæðisins og sinnir viðhaldi og endurnýjun á þeim.

Heildarfjöldi starfsmanna á víðneti lögreglunnar eru um 1150 talsins.