Upplýsingasíminn 800 5005 og netfangið info@rls.is eru samvinnuverkefni lögreglu og tollgæslu og liður í baráttunni við fíkniefnavandann.

Hafir þú upplýsingar varðandi fíkniefni, mansal og/eða vændi hvetjum við þig til að koma þeim á framfæri við lögreglu.  Fullri nafnleynd er heitið.

Talhólfið og netfangið eru vöktuð allan sólarhringinn sem tryggir að upplýsingarnar berast fljótt og vel til viðkomandi lögregluembætta.

Upplýsinga-/fíkniefnasíminn 800 5005:
Þegar hringt er í upplýsingaasímann svarar talhólf.  Þar getur þú lesið inn þær upplýsingar sem þú vilt koma á framfæri við lögreglu.  Hægt er að gefa upplýsingarnar upp nafnlaust.  Ef lögreglu er heimilt að hafa samband eða þú óskar þess þarf að taka það fram og gefa upplýsingar um nafn, símanúmer eða netfang. Einnig má hafa samband í gegnum netfangið info@rls.is.