Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi – súrálsskip á Reyðarfirði, COVID-19
Læknir og hjúkrunarfræðingur fóru um borð í súrálsskip við Mjóeyrarhöfn á Reyðarfirði í gær. Mátu þau ástand og líðan áhafnarmeðlima sem greindust með Covid við …
Læknir og hjúkrunarfræðingur fóru um borð í súrálsskip við Mjóeyrarhöfn á Reyðarfirði í gær. Mátu þau ástand og líðan áhafnarmeðlima sem greindust með Covid við …
Norræna kemur í fyrramálið með 77 farþega. Tveir þeirra greindust með COVID smit við komu um borð í Hirtshals í Danmörku. Báðir höfðu þeir áður …
Karlmaður á þrítugsaldri var í dag í Landsrétti úrskurðaður í gæsluvarðhald til 15. apríl, en maðurinn er grunaður um frelsissviptingu, ítrekuð brot gegn nálgunarbanni, hótanir …
This site contains all the necessary information on the travel restrictions in effect for travel to Iceland due to COVID-19. More
Frumherji - Skoðunarstöð á Ísafirði opin 29.06.2022.
Óvænt sumarlokun skoðunarstöðvar Frumherja á Ísafirði olli því að tafir urðu á afgreiðslu erinda eigenda ökutækja.
Frumherji hefur ákveðið að hafa skoðunarstöðina opna milli kl.08:00 og 10:00 í fyrramálið (29.06.2022). Þannig ættu þeir eigendur ökutækja sem númer hafa verið tekin af vegna vanrækslu á lögbundinni ökutækjaskoðun að geta rekið erindi sín.
Eigendur ökutækja sem ekki hafa verið færð til skoðunar á tilsettum tíma mega búast við því að skráningarnúmer verði fjarlægð af ökutækjum og komið til Frumherja, eins og venjan er.
Hins vegar verður tekið tillit til þess ef hægt er að sýna fram á að skoðunartími hefur verið pantaður fyrir viðkomandi ökutæki á næstu vikum. Mikilvægt er að sú staðfesting sé í pappírsformi, sýnileg t.d. í glugga viðkomandi ökutækis.
... Sjá meiraSjá minna
Framkvæmdafréttir
Í kvöld og nótt verður fræst og malbikuð akrein á Hafnarfjarðarvegi, milli Hamraborgar og Arnarnesvegar. Veginum verður lokað og hjáleiðir merktar. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 19 í kvöld og til kl. 7 í fyrramálið.
Í kvöld og nótt verða einnig fræstar báðar akreinar á Suðurlandsvegi við Rauðavatn. Veginum verður lokað í báðar áttir og umferð beint um Norðlingaholt. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 22 í kvöld og til kl. 4 í nótt.
Frekari fréttir um framkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu er að finna á heimasíðu Vegagerðarinnar.
... Sjá meiraSjá minna
Enn vefst fyrir ökumönnum að leggja löglega í Laugardalnum, en ástandið um helgina var í verra lagi. Höfð voru afskipti af um 150 ökutækjum á laugardag, sem öllum var lagt ólöglega, en eigenda/umráðamanna þeirra bíður nú 10 þúsund kr. sekt fyrir stöðubrot.
Rétt er að nefna að mikinn fjölda bílastæða er að finna á svæðinu, en mörg þeirra eru vannýtt og svo var um helgina. Til glöggvunar endurbirtum við hér kort af bílastæðum í Laugardalnum (Samtals 1700 bílastæði) og hvetjum fólk til að kynna sér það vel. Sérstök ástæða er til að nefna bílastæðin á milli Reykjavegar og Laugardalsvallar, en stæðin þar syðst hafa iðulega verið illa nýtt þegar viðburðir fara fram. Umrædd stæði eru merkt P á öðru korti sem fylgir líka þessari færslu.
... Sjá meiraSjá minna
1.500.000kr í sektir á einum degi, hvernig væri að þessir sektarpeningar færu í það að fjölga bílastæðum á svæðinu fyrst þetta ersvona mikið vandamál ?
Það eru góðar strætóstoppistöðvar á suðurlandsbraut. Gott að rölta þaðan niður á völlinn eða i höllina.
Þið hafið tíma í þetta...... en ekki að fylgjast með AFTURljósa notkun.....😡
Íslendingar nenna ekki að labba.
Hvernig væri ef lögreglan fylgist betur með ólöglega lögðum bílum við stjórnarráðið á biðstöð strætisvagna? Búið að vera vandamál í mörg ár.
Þið látið einsog 1700 stæði sé mikill fjöldi af stæðum... Hvað tekur höllin marga?, 5500 .. , skautahöllin 1000, svo er laugadagslaugin líka og allt annað í laugardalnum sem fólk sækist í. Það eru alltof fá stæði þarna á svæðinu