23 Mars 2021 14:12

Læknir og hjúkrunarfræðingur fóru um borð í súrálsskip við Mjóeyrarhöfn á Reyðarfirði í gær. Mátu þau ástand og líðan áhafnarmeðlima sem greindust með Covid við komu skipsins til Reyðarfjarðar laugardaginn 20. mars síðastliðinn. Enginn skipverja reyndist alvarlega veikur. Sjö af tíu sem greindust með Covid við komu skipsins höfðu einkenni veirunnar en þrír ekki. Í gær voru tekin frekari sýni af þeim níu sem ekki voru með Covid við komuna. Niðurstöður berast væntanlega seint í dag eða kvöld.

Lokið er raðgreiningu sýna sem tekin voru á laugardag. Um brasilískt afbrigði veirunnar er að ræða.

Við komu skipsins á laugardag fór hafnsögumaður um borð sem og læknir, hjúkrunarfræðingur og lögreglumaður. Allir fylgdu þeir ítrustu sóttvörnum í samræmi við leiðbeiningar og búnir hlífðarfatnaði. Hafnsögumaður fór í sóttkví í kjölfarið þar sem hann hefur ekki fengið bólusetningu vegna COVID-19. Aðrir er um borð fóru eru bólusettir og því ekki í sóttkví.

Læknir og hjúkrunarfræðingur munu í dag fara að nýju um borð til að meta ástand og líðan skipverja og veita aðhlynningu eftir þörfum.

Fréttir hafa borist af því að upplýsingar um veikindi skipverja um borð hafi ekki borist yfirvöldum í samræmi við venju og verklag. Sá þáttur er nú til skoðunar hjá Landhelgisgæslu og Samgöngustofu.