Tilkynna brot

Smelltu hér til að tilkynna brot
eða sækja um leyfi.
Nánar

112 Neyðarnúmer

Þarft þú aðstoð lögreglu – hringdu þá í 112
112

Hafðu samband

Ef erindið er ekki brýnt sendu okkur tölvupóst í gegnum formið eða hringja í síma 444 0300 Lögreglan minnir einnig á fíkniefnasímann 800 5005.

Tilkynna brot

Hér er hægt að tilkynna brot rafrænt

Áfram

Leyfi

Hér er hægt að sækja um leyfi rafrænt

Áfram

Kærumóttaka

Óska eftir tíma í kærumóttöku

Ósk um tíma

FRÉTTIR

Fíkniefni og sprengiefni í Borgarfirði

Lögreglan á Vesturlandi stöðvaði í dag för ökumanns í Borgarfirði sem grunaður er um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Ökumaður og farþegi hans eru …

Eldsvoði í Borgarfirði

Um kl. 17:30 í gær, sunnudaginn 18. október, barst tilkynning um eld í íbúðarhúsi í uppsveitum Borgarfjarðar. Við komu slökkviliðs og lögreglu á vettvang var …

Lögreglan á Vesturlandi

Hjá lögreglunni á Vesturlandi er sólarhringslöggæsla á Akranesi en alls eru 6 lögreglustöðvar í umdæminu. Miðlæg rannsóknardeild á Akranesi rannsakar stærri og flóknari sakamál.

Aðalstöð lögreglustjóra er að Bjarnarbraut 2, Borgarnesi.
Kennitala 441114-0360.
Lögreglustjóri er Jón Haukur Hauksson.

Ef óskað er eftir skjótri aðstoð lögreglu skal undantekningarlaust hringja í 112.

Ef erindið er af öðrum toga og afgreiðsla erindis þolir bið vinsamlegast hafið þá samband við þjónustuver embættisins í síma 444 0300.  Þjónustuverið er opið alla virka daga frá kl. 09:00 til kl. 15:00.

Sömuleiðis er hægt að koma upplýsingum á framfæri með því að senda tölvupóst á netfangið vesturland@logreglan.is eða hafa samband við embættið á Facebook.

Móttaka skriflegra erinda er að Bjarnarbraut 2, 310 Borgarnesi.

Lögreglan minnir einnig á fíkniefnasímann 800 5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.

Lögreglan á Vesturlandi Á Facebook

Comments Box SVG iconsUsed for the like, share, comment, and reaction icons
1 viku síðan
Lögreglan Vesturlandi

Í síðustu viku var haldinn forvarnardagur í Fjölbrautaskóla Vesturlands. Efni forvarnardagsins var ungir ökumenn og umferðaröryggi. Voru fulltrúar frá Samgöngustofu, Lögreglunni á Vesturlandi og Neyðarlínu með fyrirlestra á sal þar sem krakkarnir gátu síðan spurt út í efni fyrirlestranna. Að loknum fyrirlestrunum var farið út og þar fengu krakkarnir að sjá viðbragðsaðila, lögreglu, sjúkraflutninga HVE, Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar vinna á slysavettvangi sem búið var að setja upp fyrir utan skólann. Lýsti Sigurður Þór Elísson, varðstjóri hjá slökkviliðinu, vinnu viðbragðsaðila á vettvangi í gegnum hátalarakerfi svo áhorfendur vissu hvað væri að gerast.
Eftir að vinnu viðbragðsaðila lauk var farið aftur inn þar sem boðið var upp á mat og krakkarnir fengu samantekt á því sem hafði átt sér stað um daginn.
Vill Lögreglan á Vesturlandi þakka öllum fyrir þennan skemmtilega dag og þá helst krökkunum í fjölbrautarskólanum sem sýndu forvarnardeginum mikinn áhuga.

www.youtube.com/watch?app=desktop&v=vsYWJHdmelc&fbclid=IwZXh0bgNhZW0CMTEAAR0TLctsw4MOHNzIhD30QsPe...
... Sjá meiraSjá minna

Comment on Facebook

Frábært framtak

3 vikum síðan
Lögreglan Vesturlandi

Starf samfélagslögreglu felst ekki eingöngu í því að ræða við börn og unglinga í nútíma samfélagi. Í gærkvöldi fór ein samfélagslöggan okkar hérna á Vesturlandi á fund Lions klúbbsins Öglu í Borgarnesi. Var ástæða heimsóknarinnar að kynna fyrir þessum myndarlega hóp helstu hætturnar sem leynast á internetinu og hvað væri til ráða til að forðast þær. Sköpuðust skemmtilegar umræður og höfðu þær margar hverjar fengið gylliboð eða grunsamleg skilaboð á netmiðlum. ... Sjá meiraSjá minna

Starf samfélagslögreglu felst ekki eingöngu í því að ræða við börn og unglinga í nútíma samfélagi. Í gærkvöldi fór ein samfélagslöggan okkar hérna á Vesturlandi á fund Lions klúbbsins Öglu í Borgarnesi.  Var ástæða heimsóknarinnar að kynna fyrir þessum myndarlega hóp helstu hætturnar sem leynast á internetinu og hvað væri til ráða til að forðast þær.  Sköpuðust skemmtilegar umræður og höfðu þær margar hverjar fengið gylliboð eða grunsamleg skilaboð á netmiðlum.

Comment on Facebook

Vel gert👌

Takk fyrir mjög svo fræðandi erindi 😊

Takk fyrir fræðandi erindi og skemmtilega framsetningu 👍👏

Takk fyrir fróðlegan og skemmtilegan fyrirlestur

Svo flott og skemmtilegt starf hjá þeim í Öglu Borgarnesi. Flott og þörf umræða 🤗

View more comments

1 mánuði síðan
Lögreglan Vesturlandi

Samfélagslöggurnar á Vesturlandi afhentu öllum leikskólabörnum á Vesturlandi endurskinsmerki í heimsóknum sínum í leikskóla í febrúar og byrjun mars. Voru þetta hátt í 1000 endurskinsmerki merkt lögreglunni. Fengu elstu börnin fræðslu um hvar þau ættu að setja endurskinsmerkin og mikilvægi bílstóla og bílbelta. Að löggan væri vinur þeirra og þau gætu alltaf leitað til lögreglunnar. Var síðan lituð mynd með krökkunum sem þau höfðu mjög gaman af.
Viljum við þakka fyrir góðar móttökur á öllum þeim leikskólum sem við heimsóttum.
... Sjá meiraSjá minna

Comment on Facebook

Takk kærlega fyrir :) mín 4 ára var mjög hamingjusöm með heimsóknina og endurskinsmerkið!

Takk fyrir komuna í Garðasel. Það var mikil ánægja með heimsóknina hjá börnum og starfsfólki.

Vel gert hjá ykkur! Minn 3 ára kom mjög sáttur heim af leikskólanum um daginn og tilkynnti mér það að löggan væri vinur hans 🥰

Þið eruð frábærar löggur !!!

👏👏👏👏👏👏👏 Frábært

View more comments

Fleiri færslur

LÖGREGLAN Á Instagram