Góðir nágrannar – nágrannavarsla.

Húsnæði sem stendur autt til lengri tíma getur verið hættara við innbroti. Hægt er að grípa til ýmissa ráðstafana til að draga úr líkum á innbroti. Einnig er gott að geta leitað til nágranna þegar farið er í frí og fá þá til að líta til með húsnæðinu.

Gott er að láta nágrannana vita ef fara á í burtu í lengri tíma.

Alltaf eru einhverjir heima í nágrenninu og því sjálfsagt að tala við góða granna, láta þá vita þegar menn verða fjarverandi um lengri tíma og biðja þá að hafa augun opin fyrir vafasömum mannaferðum.

Sumir biðja jafnvel einhvern að kíkja við öðru hvoru.

Sumir hafa það mikið samband við nágranna að þeir láta einhvern þeirra fá lykil að íbúðinni þannig að hann getur farið þangað reglulega, tekið póstinn, kveikt ljós, breytt gluggatjöldum o.fl.

Sýnilegt eftirlit með húsnæði dregur úr líkum á innbroti.

Innbrotsþjófur sem sér að fylgst er með ferðum hans er yfirleitt fljótur að koma sér burt.
Það getur oft skipt lögreglu miklu máli að fá lýsingu á mönnum og bifreiðum og bílnúmer. Þannig getur athugull nágranni bæði stuggað við þjófi og gefið lögreglunni upplýsingar. Það er betra að hringja einu sinni of oft í lögreglu með upplýsingar af þessu tagi en einu sinni of sjaldan.

Vel vakandi nágrannar geta gefið upplýsingar sem hjálpa við að upplýsa mál.

Til eru fjölmörg dæmi þess að innbrot hafa verið upplýst vegna þess að nágrannar voru vel vakandi og höfðu auga með húsum nágranna sinna og létu lögreglu vita um grunsamlegar ferðir manna og bifreiða.

Verum vakandi fyrir grunsamlegum mannaferðum.

Oft gerist það að menn hringja dyrabjöllum og þegar komið er til dyra spyrja þessir menn eftir einhverjum með nafni og segja að þeir hafi átt að taka hann með í vinnu eða eitthvað álíka. Þegar sagt er að enginn slíkur búi afsaka mennirnir sig gjarnan með að hafa farið götuvillt. Stundum nota þessir menn aðrar afsakanir og ástæður. Þarna eru menn oft að kanna hvort einhver sé heima í húsinu með það í huga að brjótast inn. Ástæða er til að benda fólki á að vera á verði gagnvart svona mönnum, fylgjast með ferðum þeirra og tilkynna til lögreglu.