22 Mars 2021 14:03

Karlmaður á þrítugsaldri var í dag í Landsrétti úrskurðaður í gæsluvarðhald til 15. apríl, en maðurinn er grunaður um frelsissviptingu, ítrekuð brot gegn nálgunarbanni, hótanir og eignaspjöll. Ætluð brot mannsins voru framin á rúmlega þriggja og hálfs mánaða tímabili, eða frá því í lok nóvember á síðasta ári og fram í miðjan mars á þessu ári. Þá hefur viðkomandi stöðu sakbornings í sex öðrum málum, sem eru til meðferðar hjá lögreglu.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði fram kröfu í Héraðsdómi Reykjavíkur sl. fimmtudag um gæsluvarðhald yfir manninum, en henni var hafnað. Sá úrskurður var kærður til Landsréttur, sem hefur nú snúið honum við eins og að framan greinir.