Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu Hafa samband

Tilkynna brot

Smelltu hér til að tilkynna brot
eða sækja um leyfi.
Nánar

112 Neyðarnúmer

Þarft þú aðstoð lögreglu – hringdu þá í 112
112

Hafðu samband

Ef erindið er ekki brýnt sendu okkur tölvupóst í gegnum formið eða hringja í síma 444 1000 Lögreglan minnir einnig á fíkniefnasímann 800 5005.

Tilkynna brot

Hér er hægt að tilkynna brot rafrænt

Áfram

Leyfi

Hér er hægt að sækja um leyfi rafrænt

Áfram

Kærumóttaka

Óska eftir tíma í kærumóttöku

Ósk um tíma

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu Á Facebook

Comments Box SVG iconsUsed for the like, share, comment, and reaction icons

Konan sem lýst var eftir hefur verið handtekin. Lögregla þakkar veitta aðstoð ... Sjá meiraSjá minna

Rétt viðbrögð geta skipt sköpum þegar komið er að umferðarslysi. Hér má sjá fræðslumynd um rétt viðbrögð á slysstað. Endilega kynnið ykkur efnið og hjálpið okkur að dreifa myndinni. ... Sjá meiraSjá minna

Comment on Facebook

👍👍

Það mætti koma með góðar leiðbeiningar hvernig er hægt að koma þessum þríhyrningi fyrir t.d. í miklu roki við isl. aðstæður. Það er ekkert grín stundum. Oft fer of langur tími í það.

Alþjóðlegur dagur gegn kynbundnu ofbeldi er í dag. Af því tilefni er 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi ár hvert sem lýkur 10. desember á Alþjóðlega mannréttindadeginum.

👉 Ætíð er hægt að tilkynna mál til lögreglunnar í gegnum 112.

❗• Árið 2022 var tilkynnt um 1086 heimilisofbeldismál til lögreglunnar, þar sem í 67% tilvika var brotaþoli kvenkyns.
• Ætlað er að 4% landsmanna verði árlega fyrir heimilisofbeldi og þar af tilkynni um fimmtungur þeirra tilvikin til lögreglunnar skv. þolendakönnun lögreglunnar árið 2022.
• Árið 2022 var tilkynnt um 634 kynferðisbrot til lögreglunnar, þar sem í 85% tilvika var brotaþoli kvenkyns.
• Um 2,3% svarenda í þolendakönnun lögreglunnar 2022 sögðust hafa orðið fyrir kynferðisbroti og 19% þeirra tilkynntu brotið til lögreglu.

Upplýsingar um kynbundið ofbeldið tilkynnt til lögreglu má finna á vefsíðu lögreglunnar; 👮
www.logreglan.is/utgafa/stadfestar-tolur/kynbundid-ofbeldi/.

Á ofbeldisgátt Neyðarlínunnar 112.is má finna upplýsingar um hin ýmsu úrræði sem eru til, um birtingarmyndir ofbeldis, leiðarvísir um réttarvörslukerfið og upplýsingar fyrir gerendur til að breyta hegðun sinni.
... Sjá meiraSjá minna

Alþjóðlegur dagur gegn kynbundnu ofbeldi er í dag. Af því tilefni er 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi ár hvert sem lýkur 10. desember á Alþjóðlega mannréttindadeginum.

👉 Ætíð er hægt að tilkynna mál til lögreglunnar í gegnum 112.

❗• Árið 2022 var tilkynnt um 1086 heimilisofbeldismál til lögreglunnar, þar sem í 67% tilvika var brotaþoli kvenkyns.
• Ætlað er að 4% landsmanna verði árlega fyrir heimilisofbeldi og þar af tilkynni um fimmtungur þeirra tilvikin til lögreglunnar skv. þolendakönnun lögreglunnar árið 2022.
• Árið 2022 var tilkynnt um 634 kynferðisbrot til lögreglunnar, þar sem í 85% tilvika var brotaþoli kvenkyns.
• Um 2,3% svarenda í þolendakönnun lögreglunnar 2022 sögðust hafa orðið fyrir kynferðisbroti og 19% þeirra tilkynntu brotið til lögreglu.

Upplýsingar um kynbundið ofbeldið tilkynnt til lögreglu má finna á vefsíðu lögreglunnar; 👮
https://www.logreglan.is/utgafa/stadfestar-tolur/kynbundid-ofbeldi/.

Á ofbeldisgátt Neyðarlínunnar 112.is má finna upplýsingar um hin ýmsu úrræði sem eru til, um birtingarmyndir ofbeldis, leiðarvísir um réttarvörslukerfið og upplýsingar fyrir gerendur til að breyta hegðun sinni.

Comment on Facebook

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ætti að byrja á að taka til hjá sér.

Er möguleiki að svona fáir tilkynni því hjá ykkur ríkir skilningsleysi, hroki, hræsni og úreltir verkferlar? Hvaða skref er lögreglan að taka í þessu átaki? Í hverju felst átakið?

Þýðir það að maður að vera með ókynbundnu ofbeldi ... :o

Hvað eruð þið að gera í þessu svokallaða átaki? Hvað fer fram innan veggja lögreglunnar hvað það varðar? Ég vill hvetja ykkur til að skoða ykkar hlut í kerfislegum og menningarlegum vandamálum á við kynbundið ofbeldi, og gera stefnubreytingar samkvæmt því og kynna þær svo opinberlega. Það væri eina leiðin til að “16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi” væri að eiga sér stað af alvöru hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Það er algjör hræsni að pósta þessu og halda áfram að grafa undan baráttum á svo mörgum sviðum, þar á meðal kynbundnu ofbeldi.

Guð minn góður, hræsnin! Nú er Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu búin að beita tvær konur, mæður, og börn þeirra gegndarlausu stjórnvaldsofbeldi undanfarna daga með eftirlýsingum og ofsóknum. Styðja við þá menn sem þessar konur OG börnin þeirra saka um ofbeldi. Hvernig ætlið þið eiginlega að haga ykkur þegar þessu göfuga átaki lýkur? Ps. Gríðarlega ósmekklegt að lýsa eftir barni eins og það sé týnt þegar þið vitið að það er öruggt hjá móður sinni. Áttið þið ykkur á því að almenningur hefur áhyggjur þegar lýst er eftir fólki?!

Afhverju ætli svona fáir brotaþolar kæri ofbeldi til ykkar? Gæti það verið að þeim mæti skilningsleysi, tillitsleysi og áhugaleysi? Og það sem verra er að þið takið oft við og beitið ofbeldi af hálfu gerenda eins og t.d. Áreitið sem mæður og börn þurfa að þola þegar þær reyna að vernda börnin sín fyrir ofbeldi. Það er löngu kominn tími til að taka til í verkferlunum hjá ykkur.

#húnerhjámér

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu þið eruð stór hluti af vandamálinu, þið skulið sýna smá ábyrgð og actually taka á ofbeldismönnum en ekki þolendum. Ofbeldismenn eru þeir sem beita ofbeldi og þolendur eru þeir sem lenda í ofbeldi, bara svo þið séuð með þetta á hreinu

Hver ætli sé ástæðan sé fyrir því að aðeins fimmtungur þolenda heimilisofbeldis tilkynni til lögreglu? Gæti verið að þolendur séu hræddir um að brugðist verði við eins og í tveimur nýlegum málum þar sem mæður eru að reyna að forða börnum sínum undan meintu ofbeldi en eru í kjölfarið ofsóttar af yfirvöldum?

Ég ætla hér með að tilkynna ofbeldi gagnvart móður og barni sem lögreglan er að auglýsa eftir fyrir hönd ofbeldisfulls föður. Þar eru barnavernd Reykjavíkur og Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu virkir gerendur. Sjá síðu Lögreglunnar þar sem hún birtir myndir af barninu, og er opinberlega að skaða barn.

Hversu mörg af þessum málum voru felld niður Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu?

Eru þið ekki alltaf að standa með ofbeldismönnum almennt sérstaklega þegar kemur að umgengnismálum og velferð barna ?

Og hversu margar af þessum konum sem leita til ykkar eftir aðstoð lenda síðan í að vera handteknar og eftirlýstar af ykkur þegar þær reyna að koma börnunum sínum í skjól?

Þið ættuð að líta í eigin barm afhverju svona lág prósenta tilkynnir ofbeldismál til ykkar.

Eigum við að treysta því að verði ekki auglýst eftir okkur og börnum okkar þegar við höfum upplýst lögregluna um ofbeldi gegn okkur og börnunum? Þessi auglýsing er vægast sagt meiðandi fyrir þolendur heimilisofbeldis nú þegar fjölskyldur í landinu mega sín einskis gagnvart óhóflegri og óréttmætri valdbeitingu íslenskra stjórnvalda. Það er með fullri þátttöku lögreglunnar. Þið eruð að samnýta valdheimildir á milli stofnana til brjóta niður vilja barna sem eru að flýja ofbeldisaðstæður. Virkilega, lögregla. Vantraust þolenda ofbeldis stafar eingöngu af ykkar framkomu í garð okkar. Persónulega upplifi ég aðferðir lögreglunnar undanfarnar vikur sem hatur í minn garð, í garð kvenna. Ég veit ekki hvernig öðrum líður en hvarflar ekki að mér að ætla almenningi annað en að sjá að hér fylgja athafnir ekki orðum.

Póstið þessu þegar þið beitið móður og barn beinu ofbeldi og reynið að draga almenning í það ofbeldi. Væri ekki spurning að fara yfir verkferla? Það er ekki eðlilegt að lögreglan styðji við ofbeldi og taki þátt því einhver ofbeldisvinur vill geta beitt barnsmóður sína og son beinu ofbeldi án hindrana. Þið mistuð trúverðugleika þegar þið tókuð þátt í ofbeldinu.

Ég man eftir ansi mörgum klst sem ég var beitt ofbeldi inn á Hverfisgötu. Lítið í eigin barm

Gott dæmi um kynbundið ofbeldi er til dæmis þegar karlar nýta sér kerfið, þar á meðal lögregluna, til þess að beita konur ofbeldi. Dæmi um það er t.d. að ræna börnum sínum og neita að skila þeim, nota umgengni við börn til að beita konur ofbeldi, láta lýsa eftir konum eða börnum til að hafa stjórn á þeim og fá lögregluna til þess að taka börn af opinberum stöðum með valdi af mæðrum sínum.

Ég ætla hér með einnig að tilkynna ofbeldi gagnvart móður og barni sem lögreglan er að lýsa eftir. Einnig vil ég tilkynna ofbeldi gagnvart móður sem hefur ekkert unnið sér til saka en gerir allt sem í sínu valdi stendur til að vernda börnin sín. Í báðum tilfellum eru barnavernd Reykjavíkur og lögreglan á höfuðborgarsvæðinu virkir gerendur. Sjá fb síðu lögreglunnar þar sem hún birtir myndir af þolendum þessara mála.

Þvílík hræsni hjá lögreglunni #lífánofbeldis

Þvílík hræsni

Hvaða djók er þetta. Þið eyðið öllu ykkar púðri í að elta uppi mæður sem koma börnum sínum í skjól frá ofbeldi.

Ég styð þolendur ofbeldis. Gerir lögreglan það?

Þið eruð að taka þátt á ofbeldi gegn móður og barni þess. Hafið misst allan trúverðugleika, eruð bara annað tól feðraveldisins.

Ég ætla hér með að tilkynna ofbeldi gagnvart móður og barni sem lögreglan er að auglýsa eftir fyrir hönd ofbeldisfulls föður. Þar eru barnavernd Reykjavíkur og lögreglan á höfðuborgarsvæðinu virkir gerendur. Sjá síðu Lögreglunnar þar sem hún birtir myndir af barninu, og er opinberlega að skaða barn.

View more comments

Fleiri færslur

LÖGREGLAN Á Instagram