22 Mars 2021 16:22

Norræna kemur í fyrramálið með 77 farþega. Tveir þeirra greindust með COVID smit við komu um borð í Hirtshals í Danmörku. Báðir höfðu þeir áður framvísað neikvæðu PCR prófi í samræmi við reglur, ekki eldra en 72 klukkustunda gamalt. Þeir hafa síðan verið í einangrun um borð. Ekki er því talið að aðrir farþegar hafi orðið útsettir fyrir smiti.

Farþegar Norrænu fara sem fyrr í sýnatöku við komu til landsins, þá í sóttkví í fimm daga og svo í sýnatöku að nýju. Hinir tveir smituðu verða áfram í einangrun eftir komu og undir eftirliti sóttvarnaryfirvalda sem kannar meðal annars hvort mögulega sé um gamalt smit að ræða. Hvorugur hinna smituðu sýnir einkenni COVID smits.