Yfirstjórn embættis ríkislögreglustjóra og skipulag
Sex megin svið eru hjá embættinu auk skrifstofu ríkislögreglustjóra. Innan hvers sviðs eru svo einingar sem vinna þvert á svið. Sviðin sex og hlutverk þeirra eru eftirfarandi:
Þjónustusvið:
Sinnir almennri og sértækri þjónustu innan embættis, við lögregluembættin og við almenning.
Almannavarnir:
Ber ábyrgð á almannavörnum, leit og björgun.
Alþjóðasvið:
Sér um samskipti við lögreglu og aðrar löggæslustofnanir.
Mannauðs-, menntunar- og þjálfunarsvið:
Ber ábyrgð á mannauðs- og menntamálum embættisins.
Öryggismálasvið:
Sinnir alþjóðlegu samstarfi við aðra ytri aðila en lögreglu s.s. eins og við utanríkisráðuneytið og NATO.
Landamærasvið:
Sér um útgáfu verklags við samræmda framkvæmd landamæraeftirlits.