Ríkislögreglustjóri fer með málefni lögreglu í umboði ráðherra. Sigríður Björk Guðjónsdóttir er ríkislögreglustjóri.
Heimilisfang:
Skúlagata 21
101, Reykjavík
Netfang: rls@rls.is
Embætti ríkislögreglustjóra var stofnað 1. júlí 1997 er lögreglulög nr. 90/1996 tóku gildi. Þá var rannsóknarlögregla ríkisins lögð niður og flest verkefni hennar færð til lögreglustjóra í héraði og ríkislögreglustjóra. Ýmis stjórnsýsluverkefni lögregludeilda dómsmálaráðuneytisins færðust einnig til embættis ríkislögreglustjóra. Með lögreglulögum var stigið mikilvægt skref til grundvallarbreytinga á skipulagi æðstu stjórnar lögreglunnar og starfsemi lögreglunnar í landinu.
Yfirstjórn ríkislögreglustjóra er í höndum fjögurra manna; ríkislögreglustjóra og þriggja sviðsstjóra.
Hlutverk ríkislögreglustjóra er skilgreint m.a. í 5. gr. lögreglulaga nr. 90/1996. Meginhlutverk embættisins er að leiða lögregluna í landinu og standa vörð um öryggi borgaranna.
Ríkislögreglustjóri fer með daglega yfirstjórn lögreglu og almannavarna. samkvæmt lögreglulögum.