3 Júlí 2019 15:08
(English below)
Mælingar á Mýrdalsjökli benda til þess að hlaup geti komið í Múlakvísl á næstu vikum. Ekki er búist við stóru hlaupi en þó nokkru stærri en sést hafa undanfarin átta ár. Á síðustu árum hefur Jarðvísindastofnun Háskólans unnið að rannsóknum á sigkötlunum í Mýrdalsjökli, m.a. með nákvæmum íssjármælingum, sem geta sýnt hvort og hve mikið vatn hefur safnast fyrir undir einstökum kötlum. Niðurstöður mælinganna nú eru þær að nægt vatn hefur safnast undir jarðhitakatla í austurhluta Mýrdalsjökuls til að valda heldur stærra hlaupi en komið hafa undanfarin átta ár. Verulegar líkur eru því á hlaupi í Múlakvísl á næstu dögum eða vikum. Rennsli í flóðtoppi gæti orðið nokkru meira en varð 2017 en sennilega töluvert minna en 2011.
Á undanförnum árum hafa komið lítil jökulhlaup í Múlakvísl því sem næst árlega, nærri eða eftir mitt sumar þegar leysing á Mýrdalsjökli er í hámarki. Þessi hlaup eru það lítil að áin flæðir ekki út fyrir farveg sinn og hafa ekki valdið neinum skemmdum. Ekkert slíkt hlaup kom þó á síðasta ári. Hlaupið fyrir tveimur árum, 2017, var í meira lagi, olli ekki skemmdum á vegum en því fylgdi mikil loftmengun af völdum brennisteinsvetnis. Á síðustu 100 árum eru allavega tvö dæmi um mun stærri hlaup í Múlakvísl, 1955 og 2011. Hlaupið 2011 tók af brúna á þjóðvegi 1. Hámarksrennsli í hlaupinu árið 2017 er lauslega áætlað hafa verið nálægt 200 rúmmetrum á sekúndu niðri við þjóðveg 1, sem er um 20% hámarksrennslis hlaupsins 2011 á sama stað.
Undir Mýrdalsjökli er verulegur jarðhiti og myndar hann um 20 sigkatla á yfirborði jökulsins. Jarðhitinn bræðir jökulísinn og þetta bræðsluvatn safnast fyrir undir jarðhitakötlunum. Leysingavatn af yfirborði jökulsins nær einnig að einhverju marki að seytla niður í gegnum jökulinn og bætist við jarðhitavatnið sem þar er fyrir. Þegar nægilegt vatn hefur safnast saman brýtur það sér leið undir jökulinn og veldur hlaupi í ám.
Rétt er að benda á að hlaup úr jarðhitakötlum í Mýrdalsjökli geta runnið fram í Skálm að hluta.
Ferðaþjónustuaðilar sem sinna ferðaþjónustu á eða við jökulinn hafa verið upplýstir og farið verður nánar yfir mögulegar aðgerðir komi til hlaups. Vísindamenn telja að einhver aðdragandi verði að hlaupinu og fyrir liggur að koma á næstu dögum upp sítengdum GPS mæli í einum af kötlum jökulsins til að fá lengri fyrirvara en þann sem fæst af því að fylgjast með óróa þegar hlaup er byrjað að ryðja sér leið undir jöklinum.
Ekki er talin þörf á sérstökum lokunum fyrir umferð að sinni en vandlega verður fylgst með ástandinu og gripið inn í ef vísbendingar eru um að hlaup sé að hefjast.
Hættur samfara hlaupum í Múlakvísl:
- Hlaupvatn getur teppt leið frá þjóðvegi 1 inn að Kötlujökli vestan við Hafursey.
- Hlaupvatn getur runnið yfir og teppt eða rofið þjóðveg 1 við brúna yfir Múlakvísl.
- Hlaupvatn getur teppt leið í Þakgil.
- Gasið brennisteinsvetni (H2S) getur verið í það miklu magni í andrúmslofti nærri ánni að það brenni slímhúðir í augum og í öndunarvegi.
Leiðbeiningar:
- Virðið lokanir og rýmingar ef til þeirra kemur.
- Haldið ykkur fjarri ánni þegar hlaup er í gangi.
- Forðist staði þar sem gasmengunar gætir svo sem meðfram ánni og lægðir nærri henni. Stöðvið ekki við brúna yfir Múlakvísl eða Skálm.
Increased probability for a flood in the river Múlakvísl, South Iceland
Measurements on Mýrdalsjökull ice cap, which covers the Katla volcano, south Iceland, indicate that it is probable that a glacial flood may happen in the next few weeks. The event expected is not major, but could temporarily close dirt-roads off Road no. 1 on both sides of the river and cause hydrogen sulphide (H2S) pollution. This is based on survey work by scientists from the Institute of Earth Sciences at the University of Iceland on Mýrdalsjökull. The findings from their research shows that the accumulation of meltwater in the ice-cauldrons in Mýrdalsjökull is close to triggering a glacial outburst flood, that may happen in river Múlakvísl within the next days or weeks. The flood will probably be similar in size to the flood in 2017 but might possibly be bigger and it might even inundate part of Road no. 1 for a period of time.
In recent years there have been yearly floods, glacial outburst floods, in the river Múlakvísl in South Iceland. The river Múlakvísl runs from Kötlujökull, an outlet glacier from the glacier Mýrdalsjökull, and the bridge over the river on Road 1 is 8 km east of the village Vík. These yearly floods have in general coincided with maximal glacial melt or ablation during or just after mid-summer. In 2011 a flood occurred which destroyed the bridge across Múlakvísl on Road 1. In 2017 another sizeable flood occurred which was about half of the 2011 flood in volume and approximately 20% of the 2011 peak discharge. The flood in 2017 did not result in damage to infrastructure. Because of the geothermal origin of some of the floodwater large amounts of hydrogen sulphide gas were released from the floodwater.
Mýrdalsjökull has a large number of ice-cauldrons which are formed when geothermal activity melts the glacial ice. The meltwater collects in the cauldrons and surface meltwater to an extent seeps through the glacier into the water body at the base of the glacier. When enough meltwater has accumulated in the cauldrons this causes a glacial outburst flood.
It should also be noted that a glacial outburst flood from Kötlujökull may also find its way partly into the river Skálm.
Travel service providers operating on or near Mýrdalsjökull have been notified of the situation. They will be informed of how to respond in the event of a flood. Scientists believe that there will be a measurable short term lead-up to the flood which may be measured. For this purpose a GPS measuring device will be deployed in one of the cauldrons on Mýrdalsjökull in the coming days.
At present there is no need for road closures or limitations to traffic. The situation is being monitored closely and appropriate measures will be taken when the need arises.
Hazards associated with glacial outburst floods in Múlakvísl:
- Floodwater can close off the track from Road no. 1 to Kötlujökull which runs along the western flank of the mountain Hafursey.
- Floodwater can flow over road no. 1 and stop traffic or even breach the road.
- Floodwater may close off the road to Þakgil.
- Hydrogen sulphide gas (H2S) can be released in amounts sufficient to harm mucous membranes in people’s eyes and respiratory tract.
Instructions:
- Pay attention to and heed road closures and evacuation instructions.
- Stay away from the vicinity of flooding rivers.
- Stay away from areas where hydrogen sulphide gas may accumulate. These are areas close to the river and low lying areas in the vicinity. Do not stop on the bridges across the rivers Múlakvísl or Skálm. Do not stop within 500 meters of these bridges.