5 September 2012 12:00
Síðastliðna þrjá daga hefur lögreglan á Suðurnesjum fylgst með umferðarhraða á Gerðavegi í Garði eftir að ábendingar bárust um hraðakstur í götunni. Í umræddri götu er hámarkshraði 30 km. á klukkustund. Á þessu þremur dögum hefur hraði 193 ökutækja verið mældur, en þau óku bæði vestur og austur götuna. Meðalhraði þeirra var 36,05 km. Við yfirferð á mælingartölum kemur í ljós að þó nokkrir aka yfir leyfilegum hámarksraða. Lögregla mun því næstu daga halda áfram mælingum. Þeir sem aka of hratt eiga yfir höfði sér að þurfa að greiða sekt í samræmi við brot sitt.