12 Desember 2017 10:10
Á laugardaginn kemur, 16. desember, fer fram Twitter-maraþon lögreglunnar, svokallað “Löggutíst”. Í löggutístinu munu Lögreglan á Norðurlandi eystra, Lögreglan á Suðurnesjum og Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu nota samfélagsmiðilinn Twitter til að segja frá öllum verkefnum sem koma á borð þessara lögregluliða frá því kl. 16 til kl. 04 á sunnudagsmorguninn. Tilgangur viðburðarins er að gefa almenningi innsýn í störf lögreglu með því að fylgjast með útköllum sem henni berast, fjölda þeirra og hversu margvísleg þau eru.
Á meðan viðburðinum stendur munu embættin nota #-merkið #löggutíst til að merkja skilaboðin.
Lögreglan á Norðurlandi eystra mun tísta frá sínum notendaaðgangi: @logreglanNE – eða á www.twitter.com/logreglanNE
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun tísta frá sínum notendaaðgangi: @logreglan – eða á www.twitter.com/logreglan
Lögreglan á Suðurnesjum mun tísta frá sínum notendaaðgangi: @sudurnespolice – eða á https://twitter.com/sudurnespolice