27 Maí 2015 13:07

 

Lögreglan á Suðurnesjum hefur á undanförnum dögum haft afskipti af þremur einstaklingum á mismunandi stöðum í umdæminu sem allir voru með fíkniefni í fórum sínum.  Í öllum tilvikunum lagði svo mikla kannabislykt frá  vistarverum þeim sem mennirnir dvöldu í að hún barst langar leiðir. Allir voru þeir handteknir og framvísuðu mismiklu magni af kannabisefnum.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja  til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.