18 Febrúar 2009 12:00
Í nótt kl. 02.30 stöðvuðu lögreglumenn í eftirlitsferð bifreið sem átti leið um Biskupstungnabraut við Þrastalund. Í bifreiðinni var einn ungur karlmaður og tvær konur. Athygli vakti að í bifreiðinni voru þrír flatskjári ásamat öðrum munum. Grunur vaknaði um að fólkið hafi verið að koma úr innbrotaleiðangri. Öll þrjú voru handtekinn og flutt í fangageymslu. Við yfirheyrslur í morgun játuðu öll þrú að hafa brotist inn í þrjá sumarbústaði við Þverlág sem er vestan við Flúðir. Húsleit var gerð á dvalarstöðum þremenningan en ekkert fannst þar sem tengja mátti afbrotum. Einn bústaðanna var í einkaeign en tveir í eigu stéttarfélags. Önnur stúlkan í hópnum hafði tekið annað húsið á leigu helgina áður og þekkti orðið þar til. Þetta er önnur nóttin í röð sem innbrotsþjófar eru handteknir í Árnessýslu. Lögreglumenn hafa lagt áherslu á það undanfarið að fara í eftirlitsferðir um sumarhúsasvæðin og því verður haldið áfram.