30 Júlí 2010 12:00
Mikill fjöldi gesta eru nú þegar mættir á þjóðhátíð Vestmannaeyja og í gærkvöldi áætlar lögregla að á sjöunda þúsund manns hafi verið komnir til Eyja og stöðugt hafi bæst við í nótt og morgun.
Töluverður erill var hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum sl. nótt. Sex fíkniefnamál komu upp í gærkvöldi og í nótt, í einu málinu voru haldlögð 8 grömm af nokkuð hreinu amfetamíni. Í hinum málunum var um að ræða minni skammta af kannabis og amfetamíni.
Þrír voru kærðir fyrir líkamsárásir og gistu þeir fangageymslu. Í einu tilfellinu nefbrotnaði aðili og í öðru hlaut dyravörður á Húkkaraballinu skurð eftir að gestur sló hann. Undir morgun voru fangageymslur lögreglunnar í Vestmannaeyjum fullar. Þá voru tveir ökumenn kærðir fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna og var annar einnig undir áhrifum áfengis og að auki hafði hann verið sviptur ökuréttindum.
Í dag kl. 14:30 verður hátíðin sett og í dag halda gestir áfram að streyma til Eyja. Á áætlun Flugfélag Íslands eru 13 ferðir og þá verður loftbrú frá Bakkaflugvelli til Eyja. Herjólfur mun fara sjö ferðir framá næstu nótt og er fullbókað í allar ferðir, nema í ferð sem fer kl. 03:00 næstu nótt frá Landeyjahöfn.
Lögreglan vill hvetja foreldra til að brýna fyrir börnum sínum þeim hættur sem leynst geta á útihátíðum og telur að ungmenni yngri en 18 ára eigi þangað ekkert erindi nema í fylgd með fullorðnum. Á hátíðarsvæðinu verða starfsmenn félagsþjónustu Vestmannaeyjabæjar með vakt til grípa inní eða aðstoða ef ungmenni undir lögaldri eru á vergangi á hátíðinni.