3 Desember 2013 12:00
Lögreglumenn á vakt hafa upplýst þjófnað á stórum hjólbörðum sem stolið var frá Bíliðjunni í Þorlákshöfn um miðjan nóvember síðastliðinn. Verðmæti hjólbarðanna var um hálf milljón króna. Á eftirlitsmyndavél fyrirtækisins sást til manns á bifreið en ekki sást í skráningarnúmer. Lögreglumennirnir lögðust í mikla rannsóknarvinnu sem leiddi til þess að málið upplýstist og hjólbarðarnir komnir til eiganda síns. Sannast hér máltækið Þeir fiska sem róa.