20 Október 2017 14:20
Vegna framkominna fyrirspurna þykir lögreglunni á Suðurnesjum rétt að eftirfarandi komi fram varðandi upprætingu skipulagðra glæpasamtaka sem grunuð eru um smygl á fólki frá Suður-Evrópu til Bandaríkjanna, með viðkomu m.a. í Finnlandi og á Íslandi.
Lögreglan á Suðurnesjum hóf rannsókn þessa tiltekna máls í janúar 2017, eftir að tollverðir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar höfðu stöðvað tvo einstaklinga sem kváðust ekki þekkjast þótt sami aðili hefði greitt farmiða þeirra. Við rannsókn málsins kom meðal annars í ljós að annar mannanna ferðaðist á stolnu vegabréfi. Hann var því handtekinn. Lögreglan handtók einnig hinn manninn vegna gruns um aðild hans að því að flytja fólk með ólögmætum hætti yfir landamæri.
Upplýsingum sem fram komu við lögreglurannsóknina var miðlað til erlendra lögregluyfirvalda í gegnum Europol. Þær upplýsingar leiddu til þess að landamæraeftirlitið í Finnlandi upprætti, með stuðningi Europol og bandarískra yfirvalda, skipulögð glæpasamtök sýrlenskra og íraskra borgara. Samtökin eru grunuð um að hafa reynt að smygla fólki frá suðurhluta Evrópu til Finnlands og þaðan til Bandaríkjanna í gegnum Ísland og Mexíkó. Finnsk yfirvöld hafa handtekið fjóra liðsmenn í glæpasamtökunum og framkvæmt húsleitir í fjórum húsum í Helsinki, Vantaa og Tampere í Finnlandi. Fjöldi farsíma var meðal annars gerður upptækur í húsleitinni. Jafnframt fundust þúsundir evra í reiðufé í plastpokum.
Grunur hefur legið á að leiðin um Keflavíkurflugvöll hafi verið og sé nýtt til að smygla fólki m.a. frá Evrópu til Bretlands, Bandaríkjanna og Kanada. Ofangreindar málalyktir renna enn frekari stoðum undir þann grun. Virkt landamæraeftirlit, ekki síst á Keflavíkurflugvelli, er afar mikilvægt, eins og ofangreindar málalyktir staðfesta, og brýnt að efla lögregluna á Suðurnesjum til að sinna því starfi. Jafnframt eru alþjóðlegt samstarfs lögreglu og miðlun upplýsinga lykilatriði þegar stemma skal stigu við skipulagðri glæpastarfsemi sem þessari.