26 Ágúst 2020 18:28
Óskað var eftir aðstoð vegna manns sem hafði slasast á göngu á Snæfelli um klukkan 12:30 í dag. Maðurinn var ekki alvarlega slasaður en gat ekki komist án aðstoðar niður af fjallinu.
Björgunarsveitir voru ræstar út og svæðisstjórn björgunarsveita á Austurlandi virkjuð.
Óskað var eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslu Íslands klukkan 13:00 til að koma manninum niður af fjallinu.
Þyrlan sótti hinn slasaða og flutti undir læknishendur á Akureyri, þyrlan lenti þar um klukkan 16:30.