17 Febrúar 2021 10:24
Ekki hafa borist fréttir af skriðuföllum á Austfjörðum í gær eða nótt. Úrkomumælingar á Seyðisfirði sýna samtals 40-45 mm síðan í gærkvöldi, ákefðin fór upp í 6-7 mm/klst síðla nætur og nú í morgun. Heildarúrkoma síðan á sunnudag er komin í um 90-110 mm á sjálfvirku veðurstöðvunum þremur í firðinum. Nokkru meiri úrkoma mældist á veðurstöðvum sunnar á fjörðunum, Fáskrúðsfirði, Eskifirði og Neskaupstað. Engin marktæk hreyfing á jarðlögum í hlíðinni hefur mælst í nótt.
Um hádegi ætti að stytta upp að mestu á Austfjörðum en í kvöld kemur annar úrkomubakki upp að ströndinni sem verður líklega slydda eða snjókoma. Rýming á Seyðisfirði verður endurmetin um hádegisbil.