22 September 2006 12:00
Miðvikudaginn 20. september sl. fór fram samæfing yfirstjórna og sérsveita lögreglu á Norðurlöndunum. Æfingin var haldin í ráðstefnumiðstöð danska ríkislögreglustjórans og heiti hennar var GIMLI en orðið er sótt í norræna goðafræði.
Æfingin var skrifborðsæfing þar sem látið var reyna á samskipti stjórnstöðva ríkislögreglustjóraembættanna með það að markmiði að æfa samvinnu og samhæfingu við möguleg hryðjuverkatilfelli á Norðurlöndunum.
Svíþjóð, Noregur, Finnland, Danmörk og Ísland tóku öll þátt í æfingunni og þátttakendur þurftu að glíma við margvísleg hryðjuverkatilfelli sem mögulega gætu komið upp. Markmiðið var að styrkja samvinnu Norðurlandanna á þessu sviði með því að samæfa hryðjuverkaviðbúnað landanna.