19 Desember 2020 14:52
Veðurstofa, Vegagerð og Fjarðabyggð hafa verið við mælingar og athuganir í dag við Oddsskarðsveg. Vinna þarf úr gögnum og gera frekari mælingar og athuganir til þess að meta stöðuna og því þykir ekki óhætt að aflétta rýmingu að sinni. Staðan verður endurmetin eftir hádegið á morgun. Rýming mun því í gildi til hádegis á morgun að minnsta kosti.
Ef íbúar á rýmdum svæðum þurfa að ná í nauðsynjar á heimili sín eru þeir vinsamlegast beðnir um að gefa sig fram áður í fjöldahjálparstöð Rauða krossins í Eskifjarðarkirkju áður og fá þá fylgd inn á svæðið.
Fjöldahjálparstöðin verður opin frá kl. 16 í dag til klukkan 21. Hún opnar svo að nýju í fyrramálið kl. 9 og verður opin til hádegis þegar staðan verður metin að nýju.