31 Janúar 2008 12:00
Frá og með föstudeginum 1. febrúar breytast símanúmer Ríkislögreglustjórans, en þá mun embættið tengjast IP símstöð sem flest lögreglu- og sýslumannaembætti landsins tengjast.
Aðalnúmer Ríkislögreglustjórans verður því framvegis 444-2500 og faxnúmer 444-2501
Önnur símanúmer hjá Ríkislögreglustjóranum breytast að sama skapi:
Símanúmer alþjóðaskrifstofu verður 444-2540 og faxnúmer 444-2541
Símanúmer bílamiðstöðvar verður 444-2596 og faxnúmer 444-2597
Símanúmer almannavarna verður 444-2500 og faxnúmer 562-2665
Bein númer til starfsmanna breytast að sama skapi.