16 Október 2008 12:00
Með löggæsluáætlun 2007-2011 var ríkislögreglustjóra m.a. falið að gera árlega þolendakönnun, þ.e. rannsókn á viðhorfum til lögreglunnar og reynslu almennings af afbrotum. Í könnuninni er m.a. spurt um öryggistilfinningu almennings í heimabyggð og í miðborg Reykjavíkur, um þjónustu lögreglunnar og sýnileika hennar. Könnunin miðast við allt landið og er hægt að greina stöðuna á milli landshluta en ekki milli lögregluumdæma. Skilgreint er nánar í meðfylgjandi skýrslu undir hvaða landshluta hvert lögregluumdæmi fellur. Könnunin var framkvæmd í sumar.
Þolendakönnunin er sú fyrsta sem gerð hefur verið í þessari mynd en hún byggir á viðamikilli alþjóðlegri þolendakönnun sem framkvæmd var hér á landið árið 2004. Embætti ríkislögreglustjóra og lögregluembættið á höfuðborgarsvæðinu stóðu sameiginlega að þessari könnun, bæði hvað varðar þróun og kostnað.
Helstu niðurstöðurnar eru að um 88% svarenda telja að lögreglan sé að vinna nokkuð eða mjög gott starf. Um 74% svarenda sem tilkynnt höfðu afbrot voru mjög eða frekar ánægðir með þjónustu lögreglunnar. Um 32% svarenda sáu lögreglumann eða lögreglubíl í sínu byggðarlagi oft eða nær daglega. Markmið löggæsluáætlunar var að fjölga þeim sem telja sig örugga í miðborg Reykjavíkur að næturlagi um helgar. Það eru hins vegar færri nú, eða um 32% sem telja sig frekar eða mjög örugga í miðborginni samanborið við 36% árið 2004.
Hægt er að nálgast skýrsluna hér.