28 Desember 2015 10:21
Ferðamennirnir sem lentu í umferðarslysi á brúnni yfir Hólá á hringvegi 1 í Öræfum á annan dag jóla voru frá Japan og Kína. Ökumaðurinn sem lést var fæddur 1969 í Japan. Hann var á ferð með eiginkonu sinni og tveimur ungum börnum þeirra. Í hinni bifreiðinni voru karl og kona bæði frá Kína. Aðdragandi slyssins er til rannsóknar hjá lögreglunni á Suðurlandi.