18 Mars 2016 12:21
Lögreglan á Akureyri óskar eftir því að ná tali af ökumanni sem tók ungan mann upp í bíl sinn að kvöldi þriðjudagsins 15. mars s.l. sunnan við Hrafnagil í Eyjafjarðarsveit í kringum miðnætti.
Er viðkomandi beðinn um að hafa samband við lögregluna á Akureyri í síma 444 2800.