4 Júlí 2011 12:00
Lögreglunni á Selfossi bárust í gærkvöldi kl. 23:42 tilkynningar um að skothvellir heyrðust frá húsi á Stokkseyri. Í framhaldi af því var húsráðandi þar, sem var ölvaður, handtekinn og er nú í vörslu lögreglu. Við handtökuna hafði hann í hótunum í orði við lögreglumenn á vettvangi en beindi ekki skotvopnum sem hann var með að þeim. Hann hefur kannast við að hafa hleypt af skotum við hús sitt. Málið er til rannsóknar hjá Lögreglunni á Selfossi og nýtur hún aðstoðar sérfræðinga frá tæknideild Lögreglu Höfuðborgarsvæðisins og Sérsveitar Ríkislögreglustjóra. Í undirbúningi er að krefjast gæsluvarðhalds yfir manninum.