30 Desember 2013 12:00
Kona sem flutt var alvarlega slösuð á sjúkrahús í Reykjavík eftir umferðarslys á Hellisheiði í gær er látin. Hún hét Dagný Ösp Runólfsdóttir og var fædd 20.01.1992, búsett í Hveragerði. Hún var ókvænt og barnlaus. Dagný var ökumaður fólksbifreiðar sem ekið var vestur Suðurlandsveg og lenti í árekstri við aðra fólksbifreið sem ekið var í gagnstæða átt. Í þeirri bifreið voru móðir og tvö börn hennar, tveggja og átta ára. Annað barnið var um tíma á gjörgæslu vegna meiðsla sinna en hefur nú verið flutt á almenna deild. Meiðsl hinna eru minniháttar.
Málið er í rannsókn hjá Lögreglunni á Selfossi og eru allir þeir sem urðu vitni að aðdraganda slyssins beðnir að hafa samband í síma 480 1010