23 Júní 2011 12:00
Ábending hefur borist til lögreglunnar á Hvolsvelli
í dag 23. júní 2011 vegna hættu við Gígjökul.
Menn sem nýlega voru þarna á ferð tóku eftir að myndast hefur lítið lón við jökulsporðinn. Nú er talsverð umferð þarna og hvetjum við menn sem fara þarna upp að jökli að fara mjög varlega. Þetta á reyndar við um allt Lónstæðið gamla. Þetta er meira og minna ís huldur þunnu malarlagi. Ef menn fara fram á bakka nýja lónsins og falla í vatnið þá er glæra ís neðan við vatnsborðið. Litlar líkur er á því að maður nái að krafla sig upp úr slíku nema vopnaður broddum og ísöxi. Menn eru venjulega ekki vopnaðir slíku. Vatnið er venjulega mjög kalt á svona stöðum. Þetta er því dauðans alvara. Að hafa langan spotta eða línu er það sem helst er til bjargar ef illa fer. Best er þó að koma sér ekki í vandræði.
Lögreglan á Hvolsvelli hvetur því fólk að fara að með öllu með gát.
Einnig ítrekar lögreglan að utavegaakstur er með öllu óheimill.