17 Febrúar 2010 12:00
Lögreglan á Sauðárkróki hefur nú tekið í notkun sérstaka heimasíðu: www.logreglansaudarkroki.is
Heimasíðan var opnuð formlega í dag kl. 15:00, og var völdum gestum boðið í kaffi á lögreglustöðinni af því tilefni.
Á síðunni verður unnt að finna ýmsar upplýsingar um embættið; fréttir úr dagbók lögreglunnar; ýmis eyðublöð; tilkynningar og margt fleira, auk þess sem þar er hægt að koma nafnlausum ábendingum á framfæri við lögreglu, svo dæmi sé tekið.