18 Maí 2011 12:00
Banaslys varð í Hrunamannahreppi í gær, þriðjudag. Lögreglan á Selfossi fékk tilkynningu rétt fyrir kl. 23:00 um að slys hefði orðið er grjóthnullungur fór í gegnum þak á vélgröfu og lenti á stjórnanda hennar. Engin vitni voru að slysinu. Hinn látni var einn við vinnu í efnisnámu þegar losnaði um grjótið sem var í stáli ofan við gröfuna. Komið var að manninum látnum eftir að farið var að grenslast fyrir um hann skömmu fyrir kl. 23:00. Lögreglan á Selfossi fer með rannsókn málsins. Ekki er mögulegt á þessari stundu að upplýsa frekar um slysið því rannsókn er á frumstigi. Vinnueftirlit ríkisins mun koma að rannsókn málsins.