10 Október 2012 12:00
Aðfaranótt síðastliðins sunnudags kl. 03:53 kom í lögreglustöðina 16 ára gömul stúlka og tilkynnti að henni hefði verið nauðgað skömmu áður á grasflöt skammt frá skemmtistaðnum Hvíta Húsinu á Selfossi. Stúlkan hafði verið inni á skemmtistaðnum en farið út undir lok dansleiksins. Maður kom að stúlkunni og leiddi hana afturfyrir húsið þar sem hann nauðgaði henni. Þegar í stað var farið með stúlkuna í Neyðarmóttöku vegna nauðgana á Landspítalanum þar sem fram fór læknisrannsókn og stúlkunni veitt aðhlynning.
Stúlkan þekkti ekki brotamanninn en gaf greinargóða lýsingu á honum. Böndin beindust fljótlega að 36 ára gömlum manni búsettum á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók manninn í Reykjavík í gærmorgun og hann var fluttur í lögreglustöðina á Selfossi þar sem hann var yfirheyrður. Yfirheyrslur yfir manninum og vitnum stóðu fram eftir kvöldi í gær. Maðurinn var látinn laus seint í gærkvöldi eftir húsleit á heimili hans. Tæknideild LRH kom að rannsókninni m.a. með öflun lífsýna og úrvinnslu þeirra. Rannsóknin er í góðum farvegi en lögreglan á Selfossi biður alla þá sem hugsanlega hafa verið vitni að aðdraganda málsins og séð til stúkunnar og karlmannsins um kl. 03:00 við skemmtistaðinn Hvíta Húsið að hafa samband í síma lögreglunnar 480 1010.