17 Febrúar 2009 12:00
Þrír ungir karlmenn gista nú fangageymslur lögreglunnar á Selfossi vegna gruns um innbrot í gróðurhús á Flúðum. Lögreglunni barst tilkynning um tvö leytið í nótt að þjófavarnakerfi hefði farið í gang í gróðrastöð á Flúðum og að sést hafi til manna þar hjá. Lögreglumenn, á leið á vettvang, stöðvuðu ökumenn tveggja bifreiða sem þeir mættu á Skeiðavegi á móts við Áshildarmýri. Tveir mannanna voru í annari bifreiðinni og einn í hinni. Þeir voru allir handteknir þar sem klár vísbending var um að þeir hefðu verið á innbrotsstað. Engu var stolið en grunur er um að mennirnir hafi verið sendir af einhverjum paur í þeim tilgangi að komast yfir gróðurhúsalampa. Þremenningarnir verða yfirheyrðir í dag. Ökumennirnir eru grunaðir um að hafa verið undir áhrifum fíknefna við aksturinn auk þess voru þeir kærðir fyrir hraðakstur. Í þessu tilviki skipti þjófavarnarkerfi gróðurhússins miklu máli sem og snör viðbrögð starfsmanns gróðrarstöðvarinnar og lögreglu.