13 Október 2011 12:00
Um miðjan dag í gær framkvæmdi lögreglan á Akureyri húsleit í íbúð manns á fertugsaldri vegna gruns um fíkniefnamisferli. Hald var lagt á um 30 grömm af amfetamíni og nokkur grömm af kannabisefnum. Einnig voru haldlögð um 40 grömm af muldum e-töflum og mikið magn lyfseðilsskyldra lyfja sem ekki voru stíluð á húsráðanda. Hann var handtekinn en látinn laus að lokinni yfirheyrslu og er málið í rannsókn. Maður þessi hefur margoft komið við sögu lögreglu áður m.a. í fíkniefnamálum. Í tengslum við málið var annar maður á fertugsaldri handtekinn og var sá með lítilræði af kannabisefnum á sér.
S.l. mánudag stöðvaði lögreglan á Akureyri svo einnig mann á fertugsaldri grunaðan um akstur undir áhrifum fíkniefna. Í framhaldinu var gerð húsleit heima hjá honum þar sem hald var lagt á um 7 grömm af kannabisefnum og lítilræði af amfetamíni.
Í báðum þessum tilvikum spilaði Jökull, fíkniefnaleitarhundur lögreglunnar á Akureyri, stórt hlutverk og fann m.a. efni sem höfðu verið vandlega falin.