5 Febrúar 2020 12:05

Brot 20 ökumanna voru mynduð á Bæjarbraut í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bæjarbraut í suðurátt, á móts við Fögruhæð. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 166 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 12%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Bæjarbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning var á meðan hraðamælingunni stóð.