25 September 2015 10:35
Karlmaður á þrítugsaldri var staðinn að hnupli í Nettó í Njarðvík í gær. Að auki var hann með fíkniefni í fórum sínum. Maðurinn hafði í tvígang farið inn í verslunina til að hnupla. Í fyrra skiptið tókst honum ætlunarverk sitt og komst út með harðfisk og pakka af rafhlöðum. Í síðara skiptið var hann á leið út með tvenn heyrnartól þegar starfsmaður verslunarinnar stöðvaði hann. Lögreglan á Suðurnesjum handtók manninn og við öryggisleit á honum á lögreglustöð fundust svo fíkniefnin.