15 Ágúst 2017 11:47

Vikan var með rólegra móti hjá lögreglu fyrir utan töluverðan eril í kringum flokkun og afhendingu óskilamuna eftir Þjóðhátíðina.   Minna var um óskilamuni í ár en undanfarin ár og hefur lögreglan enga skýringu á því.

Skemmtanahald helgarinnar fór fram með ágætum og engin teljanleg vandræði í kringum öldurhúsin.  Töluverður fjöldi fólks var samankomin á Básaskersbryggju á laugardagskvöldið við komu Herjólfs en með skipinu voru nýkrýndir Bikarmeistara ÍBV í knattspyrnu sl.  Fóru hátíðarhöld vel fram en einhverjir fögnuðu titlinum fram eftir nóttu.   Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar ÍBV til hamingju með titilinn.

Tvö slys voru tilkynnt lögreglu í liðinni viku.  Í öðru tilvikinu hafði barn slasast á gæsluvellinum v/Miðstræti þegar róla sem barnið var að leika sér í slitnaði. Ekki var um alvarlega áverka að ræða.  Í hinu tilvikinu hafði barn dottið á reiðhjóli og fann til eymsla í hné eftir fallið.  Í báðum tilvikum voru börnin flutt á Heilbrigðisstofnun Suðurlands.