14 Mars 2017 10:49
Lögreglan hafði í ýmsi horn að líta í liðinni viku og má þar helst nefna rannsókn á fíkniefnamáli sem kom upp um miðja viku. Helgin gekk ágætlega fyrir sig og fá útköll á öldurhús bæjarins.
Þrjú fíkniefnamál, sem öll tengjast, komu upp í vikunni en við rannsókn lögreglu vegna gruns um sölu fíkniefna fundust um 50 gr. af maríhúana í heimahúsi. Alls voru fimm aðilar handteknir í tengslum við rannsókn málsins. Málið telst að mestu upplýst.
Þrjú umferðaróhöpp voru tilkynnt lögreglu í liðinni viku og var í öllum tilvikum um að ræða minniháttar óhöpp og engin slys á fólki.
Alls liggja fyrir 10 kærur vegna brota á umferðarlögum eftir vikuna en m.a. er um að ræða vanræksla á notkun öryggisbeltis við akstur, ólögleg lagning ökutækis ofl.