7 Apríl 2015 13:35
Föstudaginn langa var lögregla kölluð til vegna heimilisofbeldis. Karlmaður hafði ráðist á sambýliskonu sína sem hlaut af því minni háttar áverka. Maðurinn var handtekinn og yfirheyrður. Málið var unnið eftir verklagi sem lögregla hefur sett upp. Í því felst meðal annars að haldinn er sáttafundur með aðilum máls sem gert var í þessu tilviki. Að því komu ásamt lögreglu verjandi, réttargæslumaður og fulltrúi félagsmálayfirvalda. Eftirflylgniaðilar munu að viku liðinni fara yfir stöðuna með sambýlisfólkinu.
Lögreglumenn á Höfn og Selfossi komu að rannsókn á því hvers vegna m/s Haukur missti stjórnhæfni á leið út Hornafjarðarós síðastliðinn miðvikudag. Varðskip kom með m/s Hauk í Hafnarfjarðarhöfn á laugardag. Þar var rússneskur skipstjóri m/s Hauks yfirheyrður sem og aðrir í áhöfn. Talið er að stýri skipsins hafi tekið niðri og fests.
Alvarlegt vélsleðaslys varð síðastliðinn miðvikudag við Klukkuskarð í Bláskógabyggð. Ógerningur var að koma bifreið að slysstað. Leitað var til Landhelgisgæslunnar sem sendi þyrlu á staðinn. Ökumaður vélsleðans féll af sleðanum og varð undir honum. Hann var fluttur á slysadeild Landspítala. Þar kom í ljós að hann hafði mjaðmagrindarbrotnað og hlotið innvortis meiðsl.
Par á fimmtugsaldri var kært fyrir að hnupla varningi í Olís á Selfossi á föstudaginn langa. Málið er í rannsókn.
Um páskahelgina voru 63 ökumenn kærðir í umdæmi lögreglustjórans á Suðurlandi. Eins og áður var meirihlutinn erlendir ferðamenn á leiðinni milli Víkur og Hafnar. Einn ökumaður var kærður fyrir ölvun við akstur og einn fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna.