3 Maí 2016 15:53
Aðeins urðu tvö umferðaróhöpp í umdæmi LVL í sl. viku. Annað minniháttar á Akranesi en hitt varð á Laxárdalsheiði í Dölum um hádegisbilið sl. föstudag. Þar misstu erlendir ferðamenn bílaleigubíl sinn útaf í lausamöl á malarvegi og valt bíllinn í vegkantinum. Tveir voru í bílnum og voru þeir báðir fluttir með sjúkrabíl á sjúkrahús í Reykjavík. Meiðsl þeirra voru minni en talið var í fyrstu.
Lögreglan hafði afskipti af um 20 ökumönnum vegna skoðunarmála í vikunni. Voru skráningarnúmer klippt af nokkrum ökutækjum og aðrir boðaðir með bílana í skoðun.
Einn ökumaður var tekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna í umdæmi LVL í sl. viku.
Bóndi í Borgarfirði kveikti í sinu án leyfis í vikunni og má hann eiga von á að verða kærður og sektaður fyrir tiltækið.
Minniháttar bruni varð er eldur kviknaði í plastkassa út frá sígarettuglóð úti á svölum í nýrri íbúð í gamla bænum í Borgarnesi þriðjudagskvöldið 26. apríl sl. Húsráðendur náðu með aðstoð nágranna að slökkva eldinn en reykræsta þurfti íbúðina. Nokkrar skemmdir urðu á timburverki svalanna.
Um 500 hraðakstursmála fóru í gegnum myndavélakerfi LVL, þar af voru um 70 ökumenn myndaðir fyrir of hraðan akstur við Fiskilæk sunnan Hafnarfjalls. Lögreglumenn tóku rúmlega 20 ökumenn fyrir of hraðan akstur í sl. viku þar af nokkra innanbæjar í Borgarnesi þar sem er 50 km hámarkshraði.