11 Júlí 2016 10:43
Síðdegis á laugardag voru höfð afskipti af rútubílstjóra við Seljalandsfoss sem var með farþega á vegum rússneskrar ferðaskrifsofu. Bílstjórinn var rússneskur og hafði þann starfa að aka hópum á vegum ferðaskrifstofunnar um Ísland. Ekkert rekstrarleyfi var til staðar. Ökmaður var ekki með ökuritaskífu í ökurita rútunnar og hann ekki með ökuréttindi til aksturs í atvinnuskyni á Íslandi. Ökumaðurinn var handtekinn og færður til yfirheyrslu á lögreglustöðinni á Selfossi. Að henni lokinni féllst hann á lögreglustjórasátt sem fólst í 65000 króna sekt. Að því loknu var hann frjáls ferða sinna en annar bílsjóri sá um að aka rútunni með farþegunum til Reykjavíkur en þeir áttu að fara í flug síðar um kvöldið.
Í gær var ökumaður staðinn að því við Gullfoss að aka með erlenda ferðamann í leigubíl í atvinnuskyni án réttinda og auk þess að hafa ekki fullgild ökuréttindi til aksturs leigubíls. Ökumaðurinn var færður í lögreglustöð til yfirheyrslu.
Svo virðist sem nokkuð vanti uppá að þeir sem stunda akstur með farþega hafi gild hópferða- og rekstrarleyfi eða ökumenn með ökurita í lagi. Sex voru kærðir í vikunni fyrir brot af þessu tagi. Þess má geta að í tilvikum sem kært er vegna ökurita að þá er ökumaður og umráðamaður kærðir og refsing umráðamanns þyngri en ökumanns.
Tékkneskir ferðamenn voru stöðvaðir á bifreið á þjóðveginum í Eldhrauni. Þeir sögðust hafa tekið bifreiðina á leigu í gegnum netið en voru ekki með leigusamning og bifreiðin var ekki skráð sem bílaleigubifreið.
Eldur kom upp í rafmagnstöflu á Hótel Höfn uppúr hádegi á þriðjudag. Lögregla, sjúkralið og slökkvilð fór þegar á vettvang. Hótelið var rýmt en fáir voru innandyra. Slökkviliðsmenn réðu fljótt niðurlögum eldsins sem var staðbundinn í rafmangstöflu í kjallara hótelsins. Ekki liggur fyrir um hvað varð til þess að eldurinn kviknaði en rafmagnstaflan verður send til tæknirannsóknar. Enginn slys urðu á fólki og tjón lítið.
Ökumaður torfæruhjóls missti stjórn á hjólinu þegar það ofreisti sig þegar ökumaður var að fara yfir hæð á torfærubraut austur á Höfn síðastliðinn fimmtudag. Maðurinn var fluttur á heilsugæsluna á Höfn til skoðunar en hann fann til eymsla í baki.
Fimm ökumenn voru kærðir fyrir ölvunarakstur í vikunni þar af einn á hálendinu. Einn var kærður fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna og 47 fyrir hraðakstur.