5 Október 2015 11:12
Alvarlegt umferðarslys varð á hringveginum við Þorgeirsstaði í Lóni um klukkan 21 á fimmtudag. Fólksbifreið fór útaf veginum og valt með þeim afleiðingum að ökumaður, sem var í bílbelti sem og tveir farþegar, festist með efri hluta líkamans undir bifreiðinni. Vegfararndi, sem var vitni að óhappinu, tókst að mjaka bifreiðinni til og losa um ökumanninn. Lögreglumenn á Höfn fór ásamt hjálparliði á vettvang ásamt hjálparliði. Ökumaður og báðir farþegarnir voru fluttir með sjúkraflugi á Slysadeild Landspítla þar sem gert var að sárum þeirra. Ökumaður reyndist viðbeinsbrotinn og með ýmsa aðra áverka. Farþegarnir voru minna slasaðir. Ökumaðurinn mun hafa misst stjórn á bifreið sinni eftir að hafa lokið við að aka framúr vöruflutningabifreið með eftirvagni. Lögreglumenn á Höfn eru með málið í rannsókn.
Vinnuslys varð í Grímsnesi á fimmtudag þegar maður féll af vörubílspalli. Verið var að draga inn rafmagnsvír á kefli sem var á vörubílspallinum. Vírinn festist og þegar um hann losnaði slóst hann í manninn sem féll af pallinum um tvo metra. Eftir fallið átti maðurinn erfitt um hreyfingu og var fluttur með sjúkrabifreið á heilsugæsluna á Selfoss. Ekki er vitað á þessari stundu um meiðsli mannsins. Starfsmaður Vinnueftirlitsins kom á vettvang til rannsóknar.
Aðfaranótt laugardags var brotist inn í mælingabát Samgöngustofu sem um þessar mundir er í Landeyjahöfn. Báturinn var nýkominn á staðinn og hafði ekki verið sjósettur heldur var á kerru á bryggunni. Lögreglumenn á Hvolsvelli í samvinnu við lögreglu í Vestmannaeyjum hafa upplýst málið. Í ljós kom að tveir einstaklingar sem höfðu farið í bílaleigubíl með Herjólfi til Eyja og til baka á laugardeginum stóðu að innbrotinu. Tvímenningarnir voru handteknir við Hvolsvöll á laugardag. Í bifreið þeirra fannst þýfi úr bátnum sem voru verðmæt mælitæki, flotgalli og ýmiss konar verkfæri. Þeir viðurkenndu þjófnaðinn og voru látnir lausir að lokinni yfirheyrslu.
Eldur kom upp í dráttarvél á Þykkvabæjarvegi síðastliðinn miðvikudag. Slökkvilið var kallað á staðinn en búið var að slökkva eldinn þegar það kom. Eldsupptök voru við startara vélarinnar. Óverulegt tjón hlaust af eldinum.