22 Júní 2015 09:44
Mikil umferð var á Suðurlandi um helgina sem gekk vel enda ökumenn tillitsamir, glaðir og nutu greinilega lífsins. Víða voru hátíðir þó sérstaklega í Árnessýslu. Ekki var annað að sjá en allir skemmtu sér vel.
Á tímabilinu 13. til 20. júní var brotist inn í geymslu og geymslugám við sumarbústað í Grámosagötu í landi Snæfoksstaða í Grímsnesi. Líklegast er að þetta hafi átt sér stað aðfara nótt fimmtudagsins 18. júní. Sá eða þeir sem þarna voru að verki höfðu á brott mikið af rafmagnsverkfærum, útvistarfatnaðar og fleira.
Einnig var brotist inn í vinnuvél og vinnuskúr í Lambafellsnámu í Ölfusi þaðan sem var stolið verkfærum meðal annars rafsuðuvél. Þetta hefur gerst á tímabilinu frá kvöldi þriðjudags að morgni fimmtudags í síðustu viku eins og innbrotið í sumarbústaðinn í Grímsnesinu. Ekki er vitað hvort þessi tvö innbrot tengist. Innbrotin eru í rannsókn og biðlar lögreglan á Suðurlandi til allra sem veitt geta upplýsingar að koma þeim á framfæri í tölvupósti logreglan@sudurland.is. eða í síma 444 2010.
Lögregla var kölluð til um miðjan dag á föstudag vegna lausamalar á þjóðvegi 1 austan við Hvolsvöll sem olli tjóni á ökutækjum við mætingu. Við nánari skoðun kom í ljós að þarna hafði verið á ferð dráttarvél með aftanívagn sem fullum af möl. Gaflinn á vagninum hafði ekki lokast og möl runnið af honum á veginn. Ökumaður dráttarvélarinnar verður kærður fyrir að hafa ekki búið svo um farminn að ekki stæði af honum hætta.
Kona sem hafði um þar liðna helgi verslað í Kolaportinu fékk til baka fimmþúsund króna seðil sem reyndist falsaður. Konan áttaði sig ekki á þessu fyrr en síðar. Til að fá fullvissu um að seðillinn væri falsaður fór hún með hann í Landsbankann á Hvolsvelli þar sem starfsemenn sannreyndu að seðillinn væri falsaður. Málið er til rannsóknar hjá lögreglunni á Suðurlandi.
Fjögur minni háttar fíkniefnamál komu upp á Selfossi um helgina sem vörðuðu vörslu og neyslu.
Ökumaður festi bíl sinn í Reynisfjöru seint á laugardagskvöld. Hann viðurkenndi aksturinn sagðist hafa ekið niður í fjöruna til að taka ljósmyndir. Ökumaðurinn var kærður fyrir utanvegaakstur.
Sextán ára drengur slasaðist er hann dróst með hrossi sem hann hafði verið á í Reykjadal við Hveragerði. Fótur hans festist í ístaði. Drengurinn var fluttur á heilsugæslustöðina á Selfossi til skoðunar. Talið er að hann hafi hlotið minni háttar áverka.
Fólksflutningabifreið valt á Laugarvatnsvegi við Böðmóðsstaði síðdegis á fimmtudag. Sjö voru í bifreiðinni og sex þeirra hlutu minni háttar meiðsl og voru fluttir til læknisskoðunar.
Loksins hefur slegið á ökuhraðann en í síðustu viku voru 44 kærðir fyrir hraðakstur og tveir fyrir ölvunarakstur.