7 Mars 2016 10:19
Mikill viðbúnaður var vegna reyks sem kom upp á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Klausturhólum á Kirkjubæjarklaustri um klukkan sex á fimmtudagsmorgun. Slökkvilið og aðrar bjargir voru ræstar út. Hafist var handa við að rýma þá álmu heimilisins sem reykurinn var í. Enginn eldur var sjáanlegur. Við nánari skoðun kom í ljós að rafmagnsofn undir glugga var stilltur á yfir 30°C og í gluggakistu var kerti sem hafði bráðnað við hitann og vaxið lekið niður á ofninn og af því varð talsverður reykur. Öll viðbrögð og aðgerðir á staðnum gengu fumlaust fyrir sig. Engum varð meint af og ekkert tjón að heitið gæti.
Um hádegi í gær féll tveggja ára gamalt barn úr stiga upp á svefnloft í sumarbústað í Fljótshlíð. Talið er að fallið hafi verið rúmur metri. Barnið hlaut höfuðáverka og þótt rétt að kalla til þyrlu Landhelgisgæslunnar til að flytja barnið á slysadeild Landspítalans. Upplýsingar um líðan barnsins liggja ekki fyrir á þessari stundu.
Umferðareftirlitslögreglumenn sem voru á fimmtudag að vigta vörubifreiðar grunuðu farþega einnar vörubifreiðarinnar að vera með fíkniefni. Við leit á farþeganum fundust nokkrir skammtar af kannabis.
Í hádeginu á þriðjudag varð harður árekstur á gatnamótum Suðurlandsvegar og Biskupstungnabrautar. Ökumaður annarar bifreiðarinnar sýndi merki um að vera undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Hann var handtekinn og færður í lögreglustöð til blóðsýnatöku. Við leit í bifreið hans fannst vasaljós sem við nánari skoðun reyndist búið rafskautum og hægt að nota sem rafbyssu. Maðurinn verður kærður fyrir brot á vopnalögum og fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefnum.
Tvö heimilisofbeldismál komu upp í síðustu viku sem leiddu til þess að lögreglustjóri ákvarðaði um nálgunarbann.
Erlend kona hlaut opið beinbrot á úlnlið við fall í hálku við Gullfoss og önnur erlend kona úlnliðsbrotnaði við Jökulsárlón.
Lögregla var kölluð til í þrettán umferðaróhöpp í vikunni. Engin alvarleg slys urðu vegna þeirra en talsvert eignatjón.