15 Febrúar 2021 10:07
Nokkuð var um aðstoðarbeiðnir vegna vatnselgs austan til í umdæminu í gær en miklar rigningar gerði þar eystra. Aurskriða féll við bæinn Hof í Öræfum, fór þar í gegn um áratuga gamlan skógarreit og olli skemmdum á honum og girðingum við bæinn en við fyrstu sýn ekki að sjá annað tjón. Það verður skoðað betur í björtu í dag. Á Höfn safnaðist víða upp vantselgur á götum og hafði fráveitukerfi illa við úrkomunni. Ekki er þó vitað um tjón vegna þessa.
19 ökumenn voru kærðir fyrir að aka of hratt í liðinni viku í umdæmi lögreglustjórans á Suðurlandi. Hraðast ók karlmaður fæddur 2002 á Eyrarbakkavegi en hraði bifreiðar hans mældist 134 km/klst þar sem leyfður hámarkshraði er 90 km. Sekt við broti sem þessu nemur 120 þúsundum króna og 2 punktum í ökuferilsskrá. Þrír þeirra sem kærðir voru kærðir fyrir að aka of hratt á Suðurlandsvegi við Þingborg í Flóa en þar er 70 km/klst hámarkshraði. Einn þeirra mlldist á 122 km/klst hraða og situr uppi með 110 þúsund króna sekt og 3 punkta í ökuferilsskrá.
2 ökumenn eru grunaðir um að hafa ekið bifreiðum sínum undir áhrifum áfengis og eða fíkniefna. Annar þeirra var sviptur ökurétti til bráðabirgða en hann á fyrir sambærileg ólokin mál í vinnslu.
Ökumaður flutningabíls var kærður fyrir að flytja of þungan farm um Suðurlandsveg við Hellu og má hann búast við sekt vegna brots síns. Mikilvægt er að fylgjast með breytingum á gildandi þungatakmörkunum á vegum nú þegar miklar sveiflur eru úr frosti og í hita eða öfugt og líkur á tjóni á vegum því miklar.
19 stór ökutæki voru tekin til vegaskoðunar. 2 eftirvagnar vörubifreiða reyndust ekki uppfylla skilyrði hvað hjóla og ljósabúnað varðar og voru boðaðir á skoðunarstofu til skoðunar. Önnur ökutæki reyndust í lagi.
Ökumaður lítillar fólksbifreiðar var stöðvaður við akstur bifreiðar sinnar á Selfossi þann 10. febrúar. Munstur á 3 af 4 hjólbörðum bifreiðar hans var slitið upp og við blasti sléttur slitflötur sem á betur heima á formula ökutæki á þurrum sumardegi en í hálku að vetri til á Selfossi.
8 ökumenn voru í liðinni viku kærðir fyrir að nota farsíma án handfrjáls búnaðar við akstur bifreiða sinna. 40 þúsund króna sekt er við slíku broti.
Skráningarnúmer voru fjarlægð af 4 ökutækjum sem reyndust ótryggð í umferðinni
Erlendur ferðamaður sem átti að vera í sóttkví en ferðaðist austur um umdæmið á puttanum var fluttur í sóttvarnarhús í Reykjavík. Honum jafnframt gert að greiða sekt vegna brots síns.
Kona féll um 2,5 metra niður á steingólf, af vinnupalli, við störf sín í uppsveitum Árnessýslu þann 12. febrúar. Hún flutt til aðhlynningar á sjúkrahús í Reykjavík. Málið til rannsóknar hjá lögreglu og vinnueftirliti.
Enn er ófeðraður timburskúr sem hefur fallið af flutningabíl/vagni á Suðurstrandavegi að kvöldi 8. febrúar s.l. Þeir sem geta gefið upplýsingar um tilkomu skúrsins þarna eru beðnir að hafa samband við lögreglu.
Höfð voru afskipti af 6 börnum, öllum fæddum 2007, við búðarhnupl í Krónunni á Selfossi um miðjan dag í gær, 14. febrúar. Börnin færð á lögreglustöð og barnavernd, ásamt foreldrum þeirra allra boðuð á stöð þar sem greitt var úr málunum og fóru börnin síðan frjáls ferða sinna í fylgd foreldra.. Andvirði þýfisins nemur tugum þúsunda. Að rannsókn lokinni verður málið sent viðkomandi barnavernd til frekari vinnslu.