23 Nóvember 2020 09:39
29 ökumenn voru kærðir fyrir að aka of hratt í liðinni viku á Suðurlandi. Einn þeirra mældist á 155 km/klst hraða á Mýrdalssandi þar sem leyfður hámarkshraði er 90 km/klst. Hann situr uppi með 210 þúsund króna sekt og sviptingu ökuréttar í 1 mánuð. Að auki fær hann 3 punkta í ökuferilsskrá fyrir brot sitt. Annar ökumaður var stöðvaður á 140 km/klst hraða á Suðurlandsvegi í vestanverðu umdæminu en á þeim stað er einnig 90 km/klst hámarkshraði. Sá var að flýta sér í skýrslutöku hjá lögreglu á Selfossi. Hann kláraði mál sín við lögreglumenn á vettvangi og mætti tímanlega, um 10 mínútum fyrir boðaðan tíma til skýrslugjafarinnar. Þriðji ökumaðurinn sem hér kemur við sögu reyndist þegar sviptur ökurétti vegna fyrri brota. Hann var í Skaftafellssýslunni, til móts við Skál og þurfti að greiða úr bílstjóravöntun sinni áður en hann fékk að halda leiðar sinnar.
Ökumaður sem stöðvaður var við útsýnispall í Eldhrauni þann 19. nóvember s.l. reyndist undir áhrifum kannabis. Honum gert að hætta akstri og fær mál hans venjubundna meðferð.
Þann 20. nóvember valt bifreið út af vegi á mótum Suðurlandsvegar og Hoffellsvegar. Ökumaður einn í bílnum og slapp lítið meiddur. Hálka var á vettvangi og erfitt að athafna sig. Vegagerðin upplýst.
14 stór ökutæki voru stöðvuð og tekin til s.k. vegaskoðunar, þar af ein hópbifreið. Athugasemdalaust í öllum tilfellum nema einu þar sem gerðar voru athugasemdir við aurhlífar vörubifreiðar sem og afturljós hennar.
11 verkefni eru skráð í vikunni sem tengjast kóronaveirufaraldri. Um er að ræða eftirlitsferðir á veitinga og gististaði og flutning sýna til rannsóknar.