4 Nóvember 2020 15:50
Meðfylgjandi eru helstu tölur um afbrot í umdæmi lögreglunnar á Austurlandi fyrstu tíu mánuði áranna 2015 til 2020. Um bráðabirgðatölur er að ræða.
Hegningarlagabrotum fækkar lítillega milli ára á tímabilinu. Umferðarslysum fækkar einnig. Ef svo heldur sem horfir kunna umferðarslys að vera færri þetta árið en þau hafa verið frá árinu 2006. Væri það afar ánægjuleg og velkomin rós í hnappagat okkar vegfarenda.
Skráðum heimilisofbeldismálum fjölgar milli ára. Þar gæti verið um lítillega breytta skráningu að ræða fremur en raunfjölgun. Lögreglan er þó vakandi yfir málefnum sem tengjast heimilisofbeldi þar sem aukning hefur átt sér stað í öðrum landshlutum á því sviði og á það sérstaklega við eftir að sóttvarnarreglur vegna COVID voru teknar upp.
Umferðarlagabrot eru svipuð að fjölda í ár og þau voru 2018 og 2019. Þá er talsverð fjölgun í tilteknum brotaflokkum umferðarmála sem lögregla hefur lagt áherslu á í eftirliti sínu.
Lögregla mun leggja áherslu á eftirlit með dvalar – og atvinnuleyfum útlendinga í nóvembermánuði auk þess sem eftirlit verður með leyfamálum veiðimanna í fjórðungnum. Þá verður fylgst með ljósabúnaði ökutækja, ekki síst kerra sem eru á stundum nokkuð ljóslitlar og með ábyrgðatryggingu og skoðun ökutækja. Eru eigendur ökutækja hvattir til að huga að síðarnefndu atriðunum svo ekki þurfi að koma til afskipta.
Tölur lögreglu má finna hér.