8 Apríl 2008 12:00
Síðdegis í gær voru þrír ungir menn handteknir í tengslum við líkamsárás á ungan dreng á hjólabrettasvæði á Selfossi á sunnudagskvöld. Við rannsókn málsins kom fram að kúbeini var beitt í árásinni. Yfirheyrslur stóðu yfir fram yfir miðnætti. Tveir voru látnir lausir í gær en framburður þess þriðja var óljós og verður hann yfirheyrður öðru sinni nú fyrir hádegi. Eftir er að yfirheyra nokkur vitni sem gert verður í vikunni. Það liggur fyrir að tveir drengjanna, 17 og 18 ára, stóðu að árásinni og stúlka og drengur áttu hlutdeild í henni. Kúbeinið er í vörslu lögreglunnar og rannsóknin á lokastigi. Sá sem fyrir árásinni varð, eins og áður er fram komið, er óbrotinn en með bólgur í andliti eftir hnefahögginn og aumur í baki eftir kúbeinið.