17 Febrúar 2015 15:57
Fulltrúar ríkislögreglustjóra og lögreglustjóranna á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum áttu í gær samráðsfund með aðstoðarríkislögreglustjóra Litháens og yfirmönnum rannsóknarlögreglu landsins. Fundurinn er liður í sérstöku átaki lögregluyfirvalda í Litháen til að efla samstarf við erlendar löggæslustofnanir í baráttunni gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Á fundinum kynntu fulltrúar lögreglunnar í Litháen hvernig mat er lagt á skipulagða brotastarfsemi í landinu og það síðan nýtt til að ákveða áherslur og forgangsröðun verkefna. Á fundinum fóru jafnframt fram umræður um samstarf og upplýsingaskipti. Fundurinn þótti gagnlegur og stefna lögregluliðin að aukinni samvinnu.